Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. ágúst 2021 06:00
Victor Pálsson
Vongóður um að stuðningsmenn komi Aubameyang í gang
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Arsenal geta komið framherjanum Pierre Emerick Aubameyang í gang í vetur að sögn Mikel Arteta, stjóra liðsins.

Það er von Arteta að stuðningsmenn kveiki aðeins í Aubameyang sem skoraði þrennu í 6-0 sigri á West Brom í deildabikarnum.

Aubameyang var ekki upp á sitt besta á síðustu leiktíð eftir að hafa krotyað undir nýjan samning við félagið.

„Ég vona það," sagði Arteta spurður út í það hvort endurkoma stuðningsmanna myndi hafa jákvæð áhrif á framherjann.

„Augljóslega þá er hann mjög ánægður karakter og hann þarf þessa tengingu við fólkið; fjölskyldu, vini og stuðningsmenn."

„Það var hægt að sjá viðbrögðin þegar hann yfirgaf völlinn að þetta er eitthvað jákvætt fyrir hann já."

Athugasemdir
banner
banner
banner