Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 28. ágúst 2022 14:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Forest og Tottenham: Spence á bekknum - Gibbs-White byrjar
Morgan Gibbs-White
Morgan Gibbs-White
Mynd: Nottingham Forest
Nottingham Forest og Tottenham mætast í síðasta leik fjórðu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar kl 15:30. Byrjunarlið liðanna eru klár.

Ryan Yates byrjar sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni fyrir Forest en hann hefur ekki verið með í upphafi tímabils vegna meiðsla. Morgan Gibbs-White byrjar sinn fyrsta leik en hann kom sterkur inn í jafntefli liðsins gegn Everton.

Djed Spence er í fyrsta sinn í hópnum hjá Tottenham en hann byrjar á bekknum. Hann lék með Nottingham Forest á síðustu leiktíð í Championship deildinni.

Kulusevski, Son og Kane leiða sóknarlínuna hjá Tottenham.

Nottingham Forest: Henderson, Worrall, Cook, McKenna, Williams, O'Brien, Toffolo, Lingard, Johnson, Yates, Gibbs-White

Tottenham: Lloris, Sanchez, Dier, Davies, Royal, Bentancur, Hojbjerg, Perisic, Kulusevski, Son, Kane


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner