Brasilíski vinstri bakvörðurinn Renan Lodi mun ganga til liðs við Nottingham Forest á næstu dögum á láni frá Atlético Madríd. Þetta segir Fabrizio Romano á Twitter.
Forest náði samkomulagi við Atlético um Lodi seint í gær og verður gengið frá pappírum á morgun.
Lodi, sem er 24 ára gamall, er bókaður í læknisskoðun hjá Forest á næstu dögum, en félagið greiðir Atlético 5 milljónir evra fyrir lánssamninginn.
Hann verður átjándi leikmaðurinn sem Forest fær til sín í þessum glugga.
Lodi hefur spilað 116 leiki fyrir Atlético og á þá 15 landsleiki fyrir brasilíska landsliðið.
Fabrizio Romano notar frasa sinn á Twitter og segir Here We Go," og því svo gott sem öruggt að Lodi sé á leið til Forest.
Athugasemdir