Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. ágúst 2022 16:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gerrard: Þurfum að bretta upp ermarnar
Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur ekki byrjað tímabilið vel en liðið er aðeins með þrjú stig eftir fjóra leiki. Liðið vann Everton í annarri umferð.


Villa tapaði gegn West Ham í dag sem var að vinna sinn fyrsta leik og jafnaði þar með Villa að stigum.

„Ég get ekki sakað leikmennina um að reyna ekki. Þeir fóru í þennan leik og börðust gegn mjög góðum andstæðingum. Ég var mjög ánægður með stóran hluta í fyrri hálfleik," sagði Gerrard.

Gerrard á erfitt með að benda á eitt vandamál.

„Það er misjafnt. Þetta var alls ekki nógu gott gegn Crystal Palace í síðustu viku. Frammistaðan var mun betri í dag en niðurstaðan var sú sama, við þurfum úrslit og það strax."

Liðið mætir Arsenal strax á miðvikudagskvöldið.

„Ég hlakka til [að mæta Arsenal] ég vil gefa leikmönnum þann stuðning sem þeir þurfa á að halda. Við erum ekki með nógu mörg stig, þetta er erfitt. Stuðningsmennirnir voru pirraðir í dag og þeir mega vera það því við ætlumst til að vera á betri stað en við erum á. Við þurfum að bretta upp ermarnar," sagði Gerrard.


Athugasemdir
banner
banner
banner