Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 28. ágúst 2022 17:53
Brynjar Ingi Erluson
Henderson varði víti frá Kane - Hafði skorað úr síðustu fimmtán spyrnum sínum
Dean Henderson sá við Kane
Dean Henderson sá við Kane
Mynd: EPA
Enski landsliðsframherjinn Harry Kane hafði ekki klúðrað vítaspyrnu fyrir Tottenham í fjögur og hálft ár áður en Dean Henderson, markvörður Nottingham Forest, varði frá honum í 2-0 sigri Tottenham í dag.

Tottenham fékk vítaspyrnu í byrjun síðari hálfleiks eftir að Steve Cook handlék knöttinn innan teigs.

Kane fór á punktinn en Henderson varði meistaralega frá honum.

Framherjinn hafði skorað úr síðustu fimmtán spyrnum sínum í ensku úrvalsdeildinni og var síðasta klúður hans í febrúar 2018 þegar Loris Karius af öllum markvörðum varði frá honum í leik gegn Liverpool.

Þetta hafði ekki mikil áhrif á Kane í leiknum sem gerði bæði mörk Tottenham í sigrinum á Forest en Kane er kominn með fjögur mörk í fjórum leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner