Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. ágúst 2022 14:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Isak ekki kominn með atvinnuleyfi
Mynd: Newcastle

Newcastle er marki undir í hálfleik gegn Wolves eftir að Ruben Neves kom Úlfunum yfir undir lok fyrri hálfleiks með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig.


Newcastle gekk frá kaupum á Alexander Isak frá Real Sociedad á dögunum en hann er ekki í hópnum í dag.

„Það er vesen með atvinnuleyfið, vorum að vonast til að klára það frá á síðustu stundu en það gekk ekki eftir," sagði Eddie Howe stjóri Newcastle fyrir leikinn í dag.

Chris Wood er í fremstu víglínu í dag. Callum Wilson er frá vegna meiðsla.


Athugasemdir
banner
banner
banner