Fimm leikir eru á dagskrá í Bestu deild karla í dag. Stærsti leikur dagsins er leikur KA og Víkings á Greifavellinum en liðin eru í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar.
ÍBV og Stjarnan mætast klukkan 14:00 á Hásteinsvelli áður en KA spilar við Víking. KA er í öðru sæti deildarinnar með 36 stig en Víkingur í þriðja sætinu með 32 stig.
Keflavík og ÍA mætast í alvöru ríg á HS Orkuvellinum í Keflavík klukkan 17:00 og á sama tíma mætast KR og FH á Meistaravöllum.
Topplið Breiðabliks fær þá Leikni í heimsókn í lokaleik dagsins klukkan 19:15.
Leikir dagsins:
Besta-deild karla - Fyrstu 22 umferðirnar
14:00 ÍBV-Stjarnan (Hásteinsvöllur)
16:00 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
17:00 Keflavík-ÍA (HS Orku völlurinn)
17:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Leiknir R. (Kópavogsvöllur)
3. deild karla
14:00 Vængir Júpiters-ÍH (Fjölnisvöllur - Gervigras)
4. deild karla - úrslitakeppni
16:30 Árbær-Hamrarnir (Fylkisvöllur)
19:00 Árborg-GG (JÁVERK-völlurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir