Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. ágúst 2022 12:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jasmín Erla spáir í 19. umferð í Bestu deildarinnar
Jasmín Erla
Jasmín Erla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvö í vinkilinn
Tvö í vinkilinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi með sigurmarkið fyrir norðan?
Helgi með sigurmarkið fyrir norðan?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag hefst 19. umferð Bestu deildar karla og fara fimm leikir af sex fram í dag. Umferðin hefst klukkan 14:00 í Vestmannaeyjum og lýkur með viðureign Vals og Fram annað kvöld.

Olla Sigga, sóknarmaður Þróttar, var með fjóra rétta þegar hún spáði í 18. umferðina. Jasmín Erla Ingadóttir, leikmaður Stjörnunnar og markahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna, spáir í umferðina.

ÍBV 1 - 2 Stjarnan (sunnudag 14:00)
Erfiður útivöllur fyrir mína menn en þeir sigla þessum þrem stigum heim í Garðabæinn.

KA 2 - 3 Víkingur (sunnudag 16:00)
Stórleikur umferðarinnar er ekki af verri gerðinni. Það verður mikill hiti og spenna eins og í fyrri leik liðanna. Helgi tryggir Víking sigurinn á lokamínútunum.

Keflavík 1 - 2 ÍA (sunnudag 17:00)
Þar sem ég á hálfan skagamann vil ég að þeir haldi sér uppi, þeir mæta jafn peppaðir og í fyrra. Adam verður að sjálfsögðu með markið fyrir Keflavík.

KR 2 - 0 FH (sunnudag 17:00)
Þetta verður erfiður leikur fyrir bæði lið en Atli Sigurjóns setur tvö í vinkilinn og klárar dæmið fyrir KRinga.

Breiðablik 3 - 0 Leiknir (sunnudag 19:15)
Þar sem Árni frændi er meiddur held ég að Blikar taki þetta örugglega.

Valur 4 - 3 Fram (mánudag 19:15)
Þetta verður sannkallaður markaleikur þar sem sóknarmenn liðanna verða í aðalhlutverki.

Hér að neðan er hægt að hlusta á Innkastið þar sem rætt var um síðustu umferð og Útvarpsþáttinn þar sem horft var í 19. umferðina


Reimar Adam á sig markaskóna?
Innkastið - Upprisan á botninum og vígsla KA
Útvarpsþátturinn - Besta, Dagur Dan og enski
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner