Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. ágúst 2022 11:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neves hélt að hann myndi yfirgefa Wolves
Mynd: Getty Images

Ruben Neves leikmaður Wolves hefur verið eftirsóttur undanfarin ár en hefur enn ekki yfirgefið félagið.


Arsenal, Barcelona og Manchester United hafa meðal annars haft áhuga á þessum 25 ára gamla Portúgala. Þá er Liverpool í leit að miðjumanni og Neves talinn vera á blaði þar.

Wolves reynir að sannfæra hann um að skrifa undir nýjan samning. Sumarglugginn er ekki lokaður enn en Neves sagði í viðtali The Times að hann bjóst við því að vera farinn nú þegar frá Wolves.

„Ég reyni að einbeita mér 100% á fótboltann og ég hef byrjað vel. Ef þú hefðir spurt mig undir lok síðustu leiktíðar hefði ég sagt að ég væri að fara en ég er enn hér svo við vitum aldrei hvað gerist," sagði Neves.


Athugasemdir
banner