Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 28. ágúst 2022 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orri Steinn með stórleik fyrir unglingalið FCK
Orri Steinn
Orri Steinn
Mynd: Getty Images

Orri Steinn Óskarsson átti stórleik þegar u19 ára lið FC Kaupmannahafnar mætti u19 ára liði Lyngby í dag.


Staðan var 2-0 í hálfleik og Orri gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörkin. Hann var ekki hættur en FCK bætti við þremur mörkum í síðari hálfleik og Orri lagði upp eitt markanna.

Aðallið félagsins byrjar tímabilið afar illa en liðið varð danskur meistari á síðustu leiktíð. FCK er 2-0 undir gegn toppliði Nordsjælland þegar um 20 mínútur eru eftir af leiknum.

Hákon Arnar Haraldsson er í byrjunarliðinu en Ísak Bergmann Jóhannesson er hvergi sjáanlegur. Liðið er aðeins með 9 stig eftir sjö umferðir.


Athugasemdir
banner
banner
banner