Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 28. ágúst 2022 20:20
Sverrir Örn Einarsson
Steinar: Vindur þannig að það var svolítið erfitt að spila
Steinar Þorsteinsson
Steinar Þorsteinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var létt brúnin á fyrirliða Skagamanna Steinari Þorsteinssyni er hann mætti í viðtal til fréttaritara Fótbolta.net að loknum 1-0 sigri Skagamanna á Keflavík í Keflavík fyrr í dag.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  1 ÍA

„Við þurftum þennan og að ná í annan sigur það er flott. “
Sagði Steinar um úrslitin og sigur Skagans.

Leikurinn sjálfur var ekki mikið fyrir augað og einkenndist öðru framar af hörku og baráttu frekar en fallegum fótbolta.

„Já er það ekki oftast þannig þegar að þessi lið mætast. Það var líka svolítill vindur þannig að það var svolítið erfitt að spila.“ sagði Steinar og bætti svo er hann heyrði undrun fréttaritara að Skagamaður kvartaði undan vindi „Við erum vanir þessu,“

Sigurinn er sá annar í röð hjá ÍA eftir magurt gengi í sumar og langa bið eftir sigri. Er ekki mórallinn mun betri í klefanum nú eftir að liðinu hefur tekist að tengja saman sigra?

„Jú heldur betur. Sigrar, það er allt annað að vinna leiki.“
Athugasemdir
banner