Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. ágúst 2022 06:00
Fótbolti.net
Veisla í Kaplakrika og rútuferðir á KR - FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Það verður blásið til veislu í Kaplakrika fyrir leik KR og FH í dag, sunnudag.

Húsið opnar kl. 14:00 og verður mikið húllumhæ. Borgarar frá Kjötkompaníinu á grillinu og drykkir frá ölgerðinni á dælu.

Fyrir yngri kynslóðina verður andlitsmálning og sjálfur Friðrik Dór mætir og tekur lagið sitt „Risar” í lifandi flutningi.

Leikir á milli þessara liða í gegnum tíðina hafa verið rosalegir og verða mörk og helstu atvik úr öllum viðureignum liðanna síðustu 20 ár á risaskjá þar sem margur demanturinn leynist.

Rútur fara svo frá Kaplakrika klukkutíma fyrir leik eða klukkan 16:00.

sunnudagur 28. ágúst
14:00 ÍBV-Stjarnan (Hásteinsvöllur)
16:00 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
17:00 Keflavík-ÍA (HS Orku völlurinn)
17:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Leiknir R. (Kópavogsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner