Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. september 2021 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Áhugavert húðflúr hjá hetju Sheriff - Dreymir stórt!
Sebastien Thill er með stóra drauma.
Sebastien Thill er með stóra drauma.
Mynd: EPA
Sebastien Thill, miðjumaður frá Lúxemborg, var í kvöld hetja Sheriff frá Moldavíu í 2-1 sigri gegn Real Madrid í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Sheriff gerði sér lítið fyrir og tók öll stigin þrjú úr þessum leik. Jasur Jakhshibaev sá til þess að Sheriff var 1-0 yfir í hálfleik, en Karim Benzema jafnaði úr vítaspyrnu fyrir Madrídinga.

Heimamenn fengu tækifæri til að komast yfir, en í staðinn tók Sheriff aftur forystuna þegar nánast var komið fram í uppbótartíma. Thill skoraði sigurmarkið.

Þetta var án nokkurs vafa stærsta mark Thill á ferlinum. Það var líka stórglæsilegt. Hægt er að sjá það með því að smella hérna.

Þetta er stund sem Thill hefur lengi beðið eftir, ef miða má við húðflúr á fæti hans. Húðflúrið er mynd af honum að hugsa um Meistaradeildarbikarinn. Mynd af þessu skemmtilega húðflúri má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner