Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 28. september 2021 10:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Engar líkur á að tvíburarnir elti Láka - Með augastað á 2-3 mönnum
Lengjudeildin
Indriði Áki og Alexander Már
Indriði Áki og Alexander Már
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorlákur Árnason var til viðtals hér á Fótbolti.net í gær. Láki skrifaði undir samning við Þór í gær og verður þjálfari meistaraflokks karla næstu þrjú árin.

Synir hans, þeir Alexander Már og Indriði Áki, eru í dag leikmenn Fram sem endaði í efsta sæti Lengjudeildarinnar.

Fréttaritari forvitnaðist hvort það væru einhverjar líkur á því að tvíburarnir kæmu með norður.

„Nei, þeir eru að mínu mati báðir Pepsi-deildar leikmenn, þeir verða væntanlega í Fram eða öðru Pepsi-deildar liði," sagði Láki.

Ertu á þessum tímapunkti kominn með augastað á leikmenn sem þú vilt fá til félagsins í vetur?

„Já, klárlega. Þór tók inn Harley Willard sem er búinn að sanna sig í Lengjudeildinni. Hann mun styrkja liðið. Ég er með augastað á 2-3 leikmönnum sem mig langar að taka," sagði Láki.
Láki: Finnst Þór þurfa á mér að halda núna
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner