Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. september 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fanndís skrifar undir nýjan samning við Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fanndís Friðriksdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslandsmeistara Vals.

Fanndís kom til Vals frá Breiðablik árið 2018. Hún lék fjóra leiki með félaginu í fyrra en fór síðan í barneignarleyfi, hún snéri aftur á þessari leiktíð og lék 15 leiki og skoraði 6 mörk í deild og bikar.

Fréttatilkynning Vals:

Fanndís Friðriksdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Val.
Hún hefur verið mikilvægur hluti af liðinu síðan 2018 og kom gríðarlega sterk til baka eftir barneignarleyfi nú sumar. Fanndís er mjög reynslumikil og sigursæl og
það er því mikið ánægjuefni að Valur fái að njóta krafta hennar áfram.


Athugasemdir
banner
banner
banner