Grindavík á eftir að tilkynna hvaða þjálfari muni stýra karlaliði félagsins í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Sigurbjörn Hreiðarsson verður ekki áfram eftir tvö ár sem þjálfari liðsins.
Fótbolti.net ræddi við Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóra Grindavíkur, í dag og spurði hann út í stöðuna á þjálfaramálum.
Sigurbjörn Hreiðarsson verður ekki áfram eftir tvö ár sem þjálfari liðsins.
Fótbolti.net ræddi við Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóra Grindavíkur, í dag og spurði hann út í stöðuna á þjálfaramálum.
„Það er svo sem mikið til að segja frá. Við erum í samræðum við nokkra, ekki komnir í neinar viðræður við einn né neinn."
„Við erum búnir að taka púlsinn á nokkrum aðilum, ekkert komið lengra en það," sagði Jón Júlíus.
„Við samt stefnum á að klára þessi mál samt á næstunni."
Eruði að horfa eingöngu á íslenska þjálfaramarkaðinn eða horfiði líka erlendis?
„Það hefur verið töluverður áhugi á starfinu. Við höfum fengið margar fyrirspurnir, meðal annars erlendis frá en við erum bara að klára viðtöl við þjálfara um þessar mundir."
„Við ætlum að taka okkur tíma í ráðninguna," sagi Jón Júlíus.
Grindavík endaði í sjöunda sæti Lengjudeildarinnar í sumar en stefnt var að því að enda talsvert ofar.
Athugasemdir