Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. september 2021 08:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jón Dagur tók dýfufagn í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
AGF vann Íslendingaslag gegn Sönderjyske í dönsku úrvalsdeildinni í gær með einu marki gegn engu.

Jón Dagur Þorsteinsson skoraði markið eftir glæsilegan undirbúning liðsfélaga síns.

Hann fékk að líta gula spjaldið í síðustu umferð fyrir dýfu og var heppinn að fá ekki sitt annað gula spjald síðar í leiknum fyrir svipaða tilburði. Þetta vakti mikla athygli og hefur verið mikið rætt í Dannmörku.

Segir Jón Dag mest pirrandi leikmann dönsku deildarinnar

Hann tók sig til og fagnaði markinu sínu í gær eins og hann væri að stinga sér til sunds. Myndir af fagninu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner