Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. september 2021 14:21
Elvar Geir Magnússon
Kante með Covid-19 og missir af næstu leikjum
Mynd: EPA
Franski landsliðsmiðjumaðurinn N'Golo Kante hjá Chelsea mun ekki leika gegn Juventus á morgun og þá mun hann einnig missa af leik gegn Southampton.

Kante var búinn að ná sér eftir nárameiðsli en er nú aftur fjarri góðu gamni, að þessu sinni vegna veikinda en hann hefur smitast af Covid-19.

Þessi þrítugi leikmaður ætti að snúa aftur til leiks eftir landsleikjagluggann sem framundan er. Hann þarf að vera í einangrun í tíu daga.

Þá eru Christian Pulisic, Reece James og Mason Mount eru á meiðslalista Chelsea.

Chelsea er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, stigi á eftir Liverpool sem er á toppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner