Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði fyrsta mark U19 ára liðs Ajax í 3-1 sigri liðsins á tyrkneska liðinu Besiktas í Evrópukeppni unglingaliða.
Kristian skoraði með föstu skoti úr teignum eins og má sjá hér að neðan. Hann lék allan leikinn fyrir hollenska liðið sem er með fjögur stig eftir tvo leiki í C-riðli keppninnar.
Kristian skoraði með föstu skoti úr teignum eins og má sjá hér að neðan. Hann lék allan leikinn fyrir hollenska liðið sem er með fjögur stig eftir tvo leiki í C-riðli keppninnar.
Kristian er sautján ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem lék sína fyrstu U21 landsleiki fyrir Ísland fyrr í þessum mánuði.
Kristian hefur á tímabilinu spilað með varaliði Ajax, Jong Ajax, í næstefstu deild ásamt því að spila í Evrópukeppninni með unglingaliðinu.
Kristian Hlynsson (@KristianNokkvi) scores the first goal for @AFCAjax in the @UEFAYouthLeague vs. Besiktas. 🇮🇸⭐️👌 https://t.co/daeEkzR9Tv
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) September 28, 2021
Athugasemdir