Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 28. september 2021 14:37
Elvar Geir Magnússon
Maguire á meiðslalistanum næstu vikurnar
Maguire er fyrirliði Manchester United.
Maguire er fyrirliði Manchester United.
Mynd: Getty Images
Varnarmennirnir Harry Maguire og Luke Shaw tóku ekki þátt í æfingu Manchester United í dag.

Þeir urðu fyrir meiðslum í tapi United gegn Aston Villa á laugardaginn og Maguire verður ekki með gegn Villarreal í Meistaradeildinni á morgun.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, segir að Maguire verði frá næstu vikurnar en hann meiddist á kálfa.

„Þetta lítur ekki vel út og gæti tekið nokkrar vikur," sagði Solskjær á fréttamannafundi um meiðsli Maguire.

Það lítur mun betur út með Shaw sem á möguleika á því að vera í leikmannahópnum á morgun.

United þarf að vinna á morgun eftir að liðið tapaði í fyrstu umferð riðlakeppninnar, gegn Young Boys frá Sviss.

United tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Villarreal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner