Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 28. september 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pálmi Rafn samningslaus: Væri fínt að fá þetta klárt sem fyrst
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KR, verður samningslaus á næstu dögum. Pálmi hefur verið hjá KR síðan árið 2015 en hann er uppalinn hjá Völsungi en lék einnig með KA og Val áður en hann fór í atvinnumennsku árið 2008 til Noregs. Í Noregi spilaði hann með Lilleström og Stabæk.

Pálmi kom við sögu í 21 leik og skoraði fjögur mörk í Pepsi Max-deildinni í sumar. KR endaði í 3. sæti deildarinnar.

Fótbolti.net ræddi við Pálma, sem verður 37 ára í nóvember, í dag og forvitnaðist um hans stöðu.

„Ef ég bara vissi almennilega þá gæti ég nú svarað þér. Það er ekkert ákveðið ennþá og lítið sem ég get sagt. Ég reikna með því að ég setjist niður með mínum mönnum fljótlega til að sjá hvort það sé vilji beggja megin til að halda áfram eða hvort maður kalli þetta gott," sagði Pálmi Rafn.

Ertu að melta það að kalla þetta gott? „Ég veit það ekki alveg, ef það er ekki áhugi fyrir að halda mér þá segir það sig sjálft að ég er hættur. Við höfum ekkert rætt saman en ég hef fengið þau skilaboð að menn vilji halda mér. Það vara alltaf planið að við myndum ræða málin og ég reikna með því að það gerist."

Þú segir að það segi sig sjálft að þú hættir ef að það er ekki áhugi hjá KR að halda þér. Eru engar líkur á því að þú spilir fyrir annað félag?

„Ég er ekkert kominn svo langt. Það veltur bara á því hversu mikið KR vill halda mér hvað gerist. Hlutirnir geta verið fljótir að gerast, menn eru kannski komnir með einhvern annan í mína stöðu og þá er það bara þannig. Ég hef ekki sagt við þá af eða á hvort ég haldi áfram. Við munum ræða málin."

„Ég nenni sjálfur ekki að hafa þetta hangandi yfir mér þannig það væri bara fínt að fá þetta klárt sem fyrst, hvort að ég taki ár í viðbót með KR eða ekki,"
sagði Pálmi spurður hvort hann byggist við því að samtalið yrði tekið á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner