þri 28. september 2021 16:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Yfirlýsing Vals í tengslum við lokahóf: Harma skrif á samfélagsmiðlum
Íslandsmeistarartitillinn fór á loft á Hlíðarenda.
Íslandsmeistarartitillinn fór á loft á Hlíðarenda.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Um helgina var það rætt á samfélagsmiðlum að ekkert lokahóf hefði verið hjá Val í ár þar sem illa gekk hjá karlaliði félagsins í sumar. Á samfélagsmiðlum var því haldið fram að ekkert lokahóf hafi verið haldið hjá Val.

Kvennalið félagsins varð Íslandsmeistari og þótti mörgum á samfélagsmiðlum sérstakt að ekkert stórt lokahóf hafi verið haldið eftir lokaleik Vals á tímabilinu. Á facebook-síðunni Valur Fótbolti er birt yfirlýsing vegna þessarar umræðu.

Sjá einnig:
Twitter - Bíddu, voru ekki stelpurnar Íslandsmeistarar?

Yfirlýsing Vals:
Vegna skrifa um lokahóf knattspyrnudeildar Vals vill knattspyrnudeild árétta nokkur atriði.

Í fyrra varð mfl. karla Íslandsmeistarar í fótbolta og fögnuðu því í Fjósinu eins og frægt varð og án aðkomu knattspyrnudeildar. Um þetta var tíst og allt fór í bál og brand á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum, síminn stoppaði ekki, lögreglan hafði samband og framkvæmdastjóri Vals fékk stöðu sakbornings og félagið í kjölfarið kært fyrir brot á sóttvarnarlögum.

Meistaraflokkur kvk. urðu Íslandsmeistarar í ár og þann 10. september var haldinn fögnuður fyrir leikmenn og þjálfara, ásamt mökum, þar sem boðið var í mat og drykk í Fjósinu. Stóð sú veisla fram eftir kvöldi og var mjög vel heppnuð. Síðastliðinn laugardag hittist svo mfl. karla í Fjósinu þar sem boðið var upp á drykki og í kjölfarið fór hópurinn saman út að borða.

Aldrei stóð til að halda 200-300 manna sameiginlegan fögnuð mfl. kk. og kvk. í ár líkt og var 2017-2019. Þegar fögnuður mfl. kvk. var haldinn voru fjöldatakmarkanir miðaðar við 200 manns, eins metra nálægðartakmörkun og almenn grímuskylda í gangi. Reglum um sóttvarnir var breytt 14. september þar sem fjöldatakmarkanir fóru upp í 500 manns en áfram er eins metra nálægðarmörkun og grímuskylda (þó ekki á sitjandi viðburðum).

Sameiginlegt lokahóf eins og haldin voru hér 2017, 2018 og 2019 með leikmönnum, þjálfarateymi, stjórnarmönnum, sjálfboðaliðum ásamt mökum og svo stuðningsmönnum, sem mætt hafa eftir borðhald, getur að okkar mati aldrei orðið sitjandi viðburður. Var því tekin sú afstaða að halda ekki slíkan fögnuð í ár frekar en í fyrra.

Við hörmum þau skrif sem eiga sér nú stað á samfélagsmiðlum þar sem sett er út á framangreint fyrirkomulag lokahófa knattspyrnudeildar sem jafnvel hefur verið tengt við kynjamisrétti. Áréttað er að í fáum félögum hér á landi er jafn vel staðið að starfi meistaraflokka karla og kvenna og væri óskandi ef það fólk sem virðist telja sér skylt að hafa skoðun á lokahófum knattspyrnudeildar myndi kynna sér málin áður en það slær fram fullyrðingum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.

Til stuðningsmanna viðurkennir knattspyrnudeild að það misfórst að einhverju leiti að koma því skýrt til skila að ekki yrði sameiginlegur fögnuður með hefðbundnu sniði í ár í ljósi gildandi takmarkana og sóttvarna.

Biðjum við ykkur hér með velvirðingar á því og hlökkum til að fagna með ykkur að ári þegar og ef aðstæður leyfa.

Stjórn knattspyrnudeildar Vals.


Athugasemdir
banner
banner