Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mán 28. október 2019 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bale flaug til London til að hitta umboðsmann sinn
Mynd: Getty Images
Framtíð Gareth Bale er áfram í lausu lofti en leikmaðurinn flaug í dag til London til að hitta umboðsmann sinn.

Samkvæmt Sportsmail fékk Bale leyfi frá Real Madrid til að yfirgefa spænsku höfuðborgina. Velski landsliðsmaðurinn æfði með Real Madrid áður en hann flaug til London.

Heimsókn Bale til London er óvænt fyrir þær sakir að stutt er í næsta leik Real. Real mætir Leganes á miðvikudagskvöld á heimavelli. Nýjustu fréttir herma að Bale og menn í kringum hann vilji losa leikmanninn frá Real í janúar en hópurinn er ekki vongóður um að Bale losni fyrr en næsta sumar.

Bale er ósáttur með hvernig farið var með hann í sumar en Zinedine Zidane vildi losa leikmanninn. Bale fékk ekki mikinn stuðnng frá félaginu en Zidane bað hann afsökunar í kjölfarið en það lítur út fyrir að Bale hafi ekki sætti sig við þá afsökunarbeiðni að fullu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner