Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 28. október 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Bruce ver Longstaff eftir rauða spjaldið: Hann var óheppinn
Mynd: Getty Images
„Mér fannst hann vera óheppinn," sagði Steve Bruce, stjóri Newcastle, um rauða spjaldið sem miðjumaðurinn Sean Longstaff fékk seint í 1-1 jafnteflinu gegn Wolves í gær.

Longstaff fór of hátt með takkana þegar hann tæklaði Ruben Neves.

Neves lá eftir í grasinu sárþjáður og Bruce telur að það hafi haft áhrif á að rauða spjaldið fór á loft.

„Mér fannst hann spila boltanum en hann er ekki með stjórn á fætinum svo hvert á fóturinn að fara? Þegar leikmenn rúlla sér í grasinu eftir á þá er ég alltaf í smá vafa með þetta."
Athugasemdir
banner
banner
banner