Halldór Orri Björnsson gekk í raðir FH frá Stjörnunni eftir tímabilið 2016. Á síðustu þremur leiktíðum hefur Halldór leikið 54 með FH í deild og bikar og skorað sex mörk.
Halldór setti færslu inn á Facebook síðu sína í dag að kominn væri tími á breytingar og að hann yrði ekki áfram hjá FH.
„Ég hef ákveðið að breyta til í boltanum og þakka því öllum FH-ingum fyrir 3 mjög skemmtileg ár og óska ykkur góðs gengis á komandi árum," skrifaði Halldór á Facebook.

Halldór lék átján leiki með FH í Pepsi Max-deildinni í sumar og skorað þrjú mörk. Halldór hefur einungis leikið með FH og Stjörnunni á Íslandi en Halldór lék í Svíþjóð árið 2014 en þar lék hann með Falkenbergs.
Athugasemdir