Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. október 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Henderson: Fabinho hefur verið stórkostlegur
Magnaður.
Magnaður.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, hefur hrósað miðjumanninum Fabinho í hástert fyrir frammistöðu sína.

Fabinho hefur verið frábær aftast á miðjunni hjá Liverpool á þessu tímabili. Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gerir reglulega breytingar á miðjumönnum á milli leikja en Fabinho er hins vegar nánast alltaf í liðinu.

„Fab hefur verið stórkostlegur. Þetta var enn ein góða frammistaðan hjá honum (gegn Tottenham í gær). Hann er svo góður í þessari stöðu," sagði Henderson.

„Ég hef spilað í þessari stöðu áður og þetta er erfið staða. Hann er fullkominn í hana. Hann les leikinn svo vel, brýtur upp spilið og byrja sóknirnar."

„Hann er stórkostlegur þjálfari, hann er í frábæru formi og vonandi heldur það áfram."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner