Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. október 2019 09:16
Magnús Már Einarsson
Keane: Bakverðir Tottenham eins og Dumb and Dumber
Serge Aurier.
Serge Aurier.
Mynd: Getty Images
Roy Keane, sérfræðingur hjá Sky, gagnrýndi bakverði Tottenham harðlega eftir 2-1 tap liðsins gegn Liverpool á Anfield í gær.

Serge Aurier og Danny Rose voru í miklu basli í leiknum. Aurier fékk á sig vítaspyrnu sem Mohamed Salah skoraði sigurmarkið úr og Rose var í vandræðum í fyrra marki Liverpool.

„Bakverðir Tottenham voru hrikalegir. Ég myndi kalla þá Dumb and Dumber (heimskur og heimskari)," sagði Keane og vísaði í vinsæla kvikmynd.

„Mér fannst þeir vera mjög lélegir. Þú getur ekki borið þá saman við bakverði Liverpool (Trent Alexander-Arnold og Andy Robertson), þeir tveir voru algjörlega stórkostlegir."

„Sérstaklega fram á við. Þeir geta ennþá bætt sig varnarlega en þeir eru stórkostlegir fram á við,"
sagði Keane um bakverði Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner