Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. október 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Keane gagnrýnir Alli: Búinn að missa hungrið
Dele Alli.
Dele Alli.
Mynd: Getty Images
„Hann var mjög lélegur," sagði Roy Keane, sérfræðingu Sky, um frammistöðu Dele Alli miðjumanns Tottenham í leiknum gegn Liverpool í gær.

Alli hefur átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili eins og margir aðrir leikmenn Tottenham. Hinn 23 ára gamli Alli byrjaði feril sinn hjá Tottenham mjög vel en síðan hefur frammistaða hans dalað.

„Hann er frábært dæmi um marga fótboltamenn sem missa hungrið. Í dag sást hann ekki," sagði Keane.

Gary Neville tók undir með Keane. „Hann þarf að heyra þessi ummæli því hann getur tekist á við þetta," sagði Neville.

„Það er ekki eins og þetta hafi alltaf verið auðvelt fyrir hann því hann kemur úr neðri deildunum. Hann er bara hálfur leikmaður í dag."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner