Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri flokka hjá Stjörnunni.
Hinn reyndi Kristján tekur við starfinu af Atla Sveini Þórarinssyni sem hætti á dögunum eftir að hann var ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Fylki.
Hinn reyndi Kristján tekur við starfinu af Atla Sveini Þórarinssyni sem hætti á dögunum eftir að hann var ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Fylki.
Síðastliðið haust var Kristján ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni.
Hann mun halda áfram að þjálfa meistaraflokk kvenna hjá Stjörnunni samhliða því að vera yfirþjálfari yngri flokka.
„Knattspyrnudeild Stjörnunnar bindur miklar vonir við Kristján og fagnar því að hafa fengið jafn færan og reyndan þjálfara til starfa til að leiða metnaðarfullt starf í yngri flokkum deildarinnar," segir í yfirlýsingu frá Stjörnunni.
Athugasemdir