Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. október 2019 20:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mata líkir Martial við Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Juan Mata var heldur betur sáttur við liðfsélaga sinn, Anthony Martial, eftir 1-3 sigur Manchester United á Norwich í gær.

Eftir sigurinn setti Martial inn mynd á Instagram síðu sína og skrifaði við hana „Flott frammistaða í dag Manchester United."

Martial skoraði þriðja mark United í leiknum og kom það eftir ansi laglegan samleik við Marcus Rashford. Martial skoraði með vippu yfir Tim Krul, markvörð Norwich. Anthony Martial klúðraði einnig vítaspyrnu í leiknum en það kom ekki í veg fyrir hrós frá Mata.

Mata skrifaði svar við færslu Martial og gaf honum mikið hrós. Mata líkti honum við Cristiano Ronaldo en Mata skrifaði einfaldlega „Franski Ronaldo". Færslu Martial má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner