Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. október 2019 21:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Matip frá í sex vikur
Mynd: Getty Images
Joel Matip, miðvörður Liverpool, gæti misst af næstu tíu leikjum Liverpool liðsins vegna hnémeiðsla.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði á dögunum hnémeiðsli Matip ekki vera alvarleg og miðvörðurinn væri líklega einungis frá í tvær vikur.

Matip missir þá líklega af þremur síðustu leikjum Liverpool í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og heimaleikjum gegn Everton og Manchester City, svo einhverjir leikir séu nefndir.

Ef meiðslin eru alvarlegri gæti Matip misst af HM félagsliða sem fer fram eftir miðjan desember. Matip lék síðast gegn Manchester United en var sagður tæpur fyrir leikinn.

Liverpool mætir Arsenal í deildabikarnum á miðvikudag í næsta leik liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner