Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 28. október 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Pioli: Ég bjóst við meiru frá Milan
Stefano Pioli
Stefano Pioli
Mynd: Getty Images
Stefano Pioli, þjálfari AC Milan á Ítalíu, bjóst við meira frá liðinu en það tapaði 2-1 fyrir Roma í Seríu A í gær.

Pioli tók við Milan á dögunum eftir að Marco Giampaolo var látinn taka poka sinn en liðinu hefur gengið brösulega í byrjun tímabilsins.

Roma komst yfir með marki frá Edin Dzeko áður en Theo Hernandez jafnaði metin.

Fjórum mínútum síðar gaf Davide Calabria boltann frá sér en hann endaði hjá Dzeko sem var ekki í vandræðum með að finna Nicolo Zaniolo. Ítalski landsliðsmaðurinn skoraði svo örugglega.

„Ég bjóst við meiru. Ef ég horfi á þessa tvo leiki þá gáfum við frá okkur stigin. Við gerðum mistök sem eiga ekki að sjást hjá félagi af þessari stærðargráðu," sagði Pioli.
Athugasemdir
banner
banner
banner