Hinn átján ára varnarmaður Ajax, Sergino Dest, tók ákvörðun í dag um að leika fyrir Bandaríkin. Dest gat valið að leika fyrir hollenska landsliðið eða það bandaríska en ákvað að velja Bandaríkin.
Dest fæddist í Almere í Hollandi í nóvember árið 2000. Faðir hans er Bandaríkjamaður með hollensk tengsl og móðir hans er hollensk. Dest hefur leikið tvo vináttuleiki með bandaríska A-landsliðinu sem og unglingalandsliðsleiki.
Dest hefur leikið níu deildarleiki með Ajax á leiktíðinni. Ajax er taplaust á toppi Eredivisie með 29 stig eftir 11 umferðir.

BREAKING: 18-year-old Ajax defender Sergino Dest has chosen to represent @usmnt over the Netherlands.pic.twitter.com/BTUxb12eKW
— ESPN FC (@ESPNFC) October 28, 2019
Athugasemdir