Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 28. október 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu mörkin: Jón Dagur og Arnór Ingvi á skotskónum
Jón Dagur Þorsteinsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Jón Dagur Þorsteinsson og Arnór Ingvi Traustason voru báðir á skotskónum í kvöld.

Jón Dagur skoraði eina mark AGF í 1-2 tapi gegn FCK og Arnór Ingvi skoraði annað mark Malmö í 2-0 sigri á AIK.

Sjá einnig: Norðurlöndin: Jón Dagur og Arnór Ingvi skoruðu

Mark Jóns Dags kom eftir að varnarmaður FCK náði ekki að hreinsa í burtu eftir fyrirgjöf. Jón Dagur var vel á tánum og vippaði laglega yfir markvörð FCK.

Mark Arnórs Ingva kom undir lok leiks gegn AIK. Arnór var réttur maður á réttum stað í teignum og stýrði fyrirgjöf í netið af stuttu færi.

Íslendingavaktin birti myndönd af mörkum Íslendinganna á Twitter reikningi sínum og myndböndin má sjá hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner