Rafael van der Vaart, fyrrum miðjumaður Tottenham, hefur haft samband við Daniel Levy formann félagsins og sagt honum að kaupa kantmanninn Hakim Ziyech frá Ajax næsta sumar.
Hinn 26 ára gamli Ziyech var orðaður við Tottenham í sumar og Van der Vaart vill að félagið kaupi hann.
„Ég vona virkilega að hann fari til Tottenham Hotspur. Ég sendi skilaboð til Levy í dag og sagði: Kauptu Ziyechh eftir tímabilið," sagði Van der Vaart.
„Ég er viss um að hann verði stórstjarna í London og það er ósk mín. Ég vona að Spurs taki hann."
Ziyech hefur vakið mikla athygli með Ajax en hann skoraði gegn Tottenham í leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar síðastliðið vor.
Athugasemdir