Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 28. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Diallo opinn fyrir því að fara til Feyenoord
Amad Diallo
Amad Diallo
Mynd: Getty Images
Fílabeinsstrendingurinn Amad Diallo er opinn fyrir því að fara á lán til hollenska félagsins Feyenoord í janúar en hann hefur ekki spilað leik fyrir Manchester United á þessari leiktíð.

United keypti Diallo frá Atalanta í janúar og kom við sögu í átta leikjum á tímabilinu þar sem hann gerði eitt mark og lagði upp eitt.

Hann hefur hins vegar ekki fengið tækifærið á þessari leiktíð og er Ole Gunnar Solskjær opinn fyrir því að lána hann frá félaginu í janúar.

Samkvæmt hollenskum miðlum þá hefur Feyenoord áhuga á að fá Diallo og er sá áhugi gagnkvæmur. Hann hefur fylgst mikið með liðinu spila og er hrifinn af leikstíl þess.

Diallo, sem er 19 ára gamall, var keyptur á 37 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner