Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. nóvember 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Beckham vill ráða Vieira til starfa
Patrick Vieira.
Patrick Vieira.
Mynd: Getty Images
David Beckham, eigandi Inter Miami, vill að Patrick Vieira verði fyrsti þjálfarinn í sögu félagsins.

Inter Miami tekur þátt í MLS deildinni í fyrsta skipti á næsta tímabili og verið er að mynda leikmannahóp og finna þjálfara.

Vieira er í dag þjálfari Nice í Frakklandi en hann er efstur á óskalista Beckham í verkefnið.

Inter Miami er tilbúið að borga Nice til að leysa hinn 43 ára gamla Vieira undan samningi þar. Félögin hafa þegar hafið viðræður vegna málsins.

Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Belga, og Marcelo Gallardo þjálfari River Plate hafa einnig verið orðaðir við Inter Miami.
Athugasemdir
banner
banner
banner