fim 28. nóvember 2019 08:30
Aksentije Milisic
Birkir Bjarna um Grealish: Hann getur spilað fyrir stórlið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason var í ítarlegu viðtali við vefsíðuna underagaslitlamp.com þar sem hann fór yfir feril sinn hjá Aston Villa. Þar ræddi hann á m.a. um að honum var spilað úr stöðu.

Hann var spurður út í fyrirliða liðsins, Jack Grealish, sem hefur átt mjög gott tímabil með Aston Villa það sem af er tímabili.

„Hann er besti leikmaður Aston Villa. Hann er fyrirliði með ótrúlega hæfileika og hann er ennþá ungur. Geta hans er líklega meiri en staðurinn sem Aston Villa er núna á sem klúbbur. Hann gæti spilað fyrir stórlið." sagði Birkir.

„Hann getur náð mjög langt en ég vona að Villa nái að halda honum hjá liðinu eins lengi og hægt er.

Grealish og félagar mæta á Old Trafford á sunnudaginn næstkomandi í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner