Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. nóvember 2019 18:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Arsenal: Xhaka snýr aftur
Mynd: Getty Images
Lærisveinar Unai Emery í Arsenal eiga leik gegn þýska úrvalsdeildarliðinu Eintracht Frankfurt í Evrópudeildinni í kvöld.

Granit Xhaka er kominn aftur inn í byrjunarlið Arsenal og mun hann spila sinn fyrsta leik fyrir félagið frá því hann var tekinn af velli gegn Crystal Palace þann 27. október síðastliðinn.

Stuðningsmenn Arsenal létu Xhaka heyra það þegar hann var tekinn af velli gegn Palace.

Hann brást reiður við, sendi merkjagjöf í átt að stúkunni og kallaði 'fokk off'. Hann reif sig svo úr treyjunni áður en hann óð beint inn í klefa.

Hann missti fyrirliðabandið til Pierre-Emerick Aubameyang, en er mættur aftur í byrjunarliðið fyrir leik kvöldsins í London.

Hér að neðan má sjá byrjunarliðið hjá Arsenal.

Byrjunarlið Arsenal: Martinez, Mustafi, Sokratis, Luiz, Chambers, Xhaka, Willock, Tierney, Martinelli, Saka, Aubameyang.
(Varamenn: Leno, Lacazette, Ozil, Torreira, Pepe Nelson, Guendouzi)
Athugasemdir
banner
banner
banner