Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 28. nóvember 2019 17:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Katar: Al Arabi komið í 8-liða úrslit
Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al Arabi.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al Arabi.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Al Arabi er liðið mætti AL Gharafa í bikarkeppninni í Katar í dag.

Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í Al Arabi komust yfir á 34. mínútu þegar Hamdi Harbaoui skoraði. Forystan entist hins vegar ekki lengi þar sem Sofiane Hanni jafnaði á 41. mínútu.

Lokatölur 1-1, en Al Gharafa er í þriðja sæti deildarinnar í Katar, Íslendingalið Al Arabi í fimmta sæti.

Í bikarkeppninni í Katar er leikið í tveimur riðlum og komast fjögur efstu liðin í báðum riðlunum í 8-liða úrslit. Al Arabi er búið að tryggja sig áfram í 8-liða úrslitin eftir jafnteflið í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner