Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. nóvember 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Pogba snýr aftur til Englands - Þakkar læknaliðinu í Bandaríkjunum
Mynd: Getty Images
Paul Pogba er farinn aftur til Englands eftir að hafa verið í Miami í Bandaríkjunum undanfarið í meðhöndlun vegna meiðsla.

Pogba birti í dag mynd á Instagram þar sem hann þakkar læknaliðinu í Bandaríkjunum fyrir hjálpina undanfarnar vikur.

Pogba hefur ekkert spilað með Manchester United síðan 30. september vegna meiðsla.

Frakkinn ætti hins vegar að vera klár í slaginn á nýjan leik á næstu vikum.

Einhverjar sögusagnir segja þó að Pogba vilji fara frá United og vonist eftir að komast í burtu í janúar.



Athugasemdir
banner