Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. nóvember 2021 16:40
Aksentije Milisic
Gerrard hrósar Dean Smith - „Hér var unnið frábært starf"
Mynd: EPA
Steven Gerrard hefur byrjað mjög vel sem stjóri Aston Villa en hann hefur stýrt liðinu í tvo leiki. Hann tók við Villa af Dean Smith sem stjórnar nú Norwich City.

Gerrard er aðeins annar stjórinn í sögu Aston Villa sem byrjar á tveimur sigurleikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni. Hinn stjórinn var John Gregory en honum tókst að byrja á tveimur sigrum í röð árið 1998.

„Það var frábært að á þessum sigri en við megum ekki gleyma okkur í gleðinni. Þetta hafa verið tvær góðar vikur og leikmennirnir hafa staðið sig frábærlega," sagði Gerrard.

Hann hrósaði Dean Smith, fyrrverandi stjóra liðsins, og sagði að hér hafi verið unnið mjög gott starf.

„Hér var unnið frábært starf áður en við mættum. Dean Smith gerði mjög flotta hluti og félagið ætti að vera með fleiri stig miðað við frammistöðurnar undir hans stjórn."

Dean Smith hefur byrjað vel með Norwich en hann hefur sótt fjögur stig í tveimur fyrstum leikjum sínum og aðeins fengið á sig eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner