Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 28. desember 2017 10:51
Magnús Már Einarsson
Gylfi langlaunahæstur íslenskra atvinnumanna - Aron Jó númer tvö
Gylfi gekk í raðir Everton í sumar.
Gylfi gekk í raðir Everton í sumar.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er langlaunahæsti íslenski íþróttamaðurinn samkvæmt lista í Áramótum, nýju blaði Viðskiptablaðsins.

Þar er birtur listi yfir 25 launahæstu íslensku íþróttamennina árið 2017. Áætlun laun er í krónum, talið fyrir skatta.

Gylfi er með 660 milljónir króna í árslaun en hann gekk í sumar í raðir Everton. Aron Jóhannsson, framherji Werder Bremen, er í öðru sæti listans og Jóhann Berg Guðmundsson í því þriðja.

23 af 25 atvinnumönnum á listanum eru fótboltamenn en þar er einnig að finna tvo handboltamenn.

25 launahæstu íslensku atvinnumennirnir
Gylfi Þór Sigurðsson (Everton) um 660 milljónir króna
Aron Jóhannsson (Werder Bremen) um 200 milljónir króna
Jóhann Berg Guðmundsson (Burnley) um 180 milljónir króna
Birkir Bjarnason (Aston Villa) um 170 milljónir króna
Ragnar Sigurðsson (Fulham/Rubin Kazan) um 150 milljónir króna
Alfreð Finnbogason (Augsburg) um 150 milljónir króna
Sverrir Ingi Ingason (Rostov) um 140 milljónir króna
Aron Einar Gunnarsson (Cardiff) um 135 milljónir króna
Kolbeinn Sigþórsson (Nantes) um 130 milljónir króna
Viðar Örn Kjartansson (Maccabi Tel Aviv) um 125 milljónir króna
Jón Daði Böðvarsson (Reading) um 110 milljónir króna
Emil Hallfreðsson (Udinese) um 80 milljónir króna
Hörður Björgvin Magnússon (Bristol) um 75 milljónir króna
Aron Pálmarsson (Barcelona/handbolti) um 60 milljónir króna
Rúrik Gíslason (Nurnberg) um 50 milljónir króna
Guðjón Valur Sigurðsson (Rhein Neckar Löwen/handb). um 50 m.
Rúnar Már Sigurjónsson (Grasshoppers) um 45 milljónir króna
Matthías Vilhjálmsson (Rosenborg) um 45 milljónir króna
Björn Bergmann Sigurðarson (Molde) um 45 milljónir króna
Ólafur Ingi Skúlason (Karabukspor) um 45 milljónir króna
Guðlaugur Victor Pálsson (Zurich) um 45 milljónir króna
Ari Freyr Skúlason (Lokeren) um 40 milljónir króna
Kári Árnason (Aberdeen) um 40 milljónir króna
Hannes Þór Halldórsson (Randers) um 30 milljónir króna
Arnór Ingvi Traustason (Malmö) um 30 milljónir króna
Byggt á lista Viðskiptablaðsins. Áætluð laun í krónum. Talið fyrir skatta.
Athugasemdir
banner
banner
banner