Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 28. desember 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Henderson frá keppni í mánuð
Jordan Henderson.
Jordan Henderson.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verður frá keppni í mánuð vegna meiðsla aftan í læri.

Henderson meiddist aftan í læri eftir einungis tíu mínútur í 3-3 jafnteflinu gegn Arsenal í síðustu viku.

Hann var síðan fjarri góðu gamni í 5-0 sigrinum á Swansea í fyrradag.

Eftir rannsóknir er ljóst að hann verður frá keppni að minnsta kosti mánuð.

Hinn 27 ára gamli Henderson missir að minnsta kosti af sex leikjum með Liverpool en þar má nefna bikarleik gegn Everton og stórleik í ensku úrvalsdeildinni gegn Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner