Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 28. desember 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Meiðsli Sturridge ekki alvarleg
Daniel Sturridge.
Daniel Sturridge.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, reiknar með að Daniel Sturridge verði ekki lengi frá keppni vegna meiðsla sem hann er að glíma við.

Sturridge hefur misst af síðustu fimm leikjum Liverpool. Fyrst var hann veikur og síðan meiddist hann í kjölfarið.

„Þetta er ekki stórmál í hreinskilni sagt. Á þessum kafla tímabilsins heldur þetta þér hins vegar frá keppni," sagði Klopp.

Sturridge hefur verið mikið meiddur í gegnum tíðina en hann missti af fyrstu tveimur leikjunum á þessu tímabili vegna meiðsla.

Síðan þá hefur Sturridge spilað fjórtán leiki og skorað í þeim þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner