RB Leipzig í Þýskalandi er að ganga frá kaupum á Reece Oxford varnarmanni West Ham.
Hinn 19 ára gamli Oxford hefur verið í láni hjá Gladbach í Þýskalandi í vetur en þar hefur hann einungis leikið þrjá leiki.
West Ham ætlar núna að kalla Oxford til baka úr láni og selja hann á 16,88 milljónir punda til RB Leipzig.

Leipzig hefur lengi haft áhuga á Oxford en félagið reyndi að krækja í hann í fyrra án árangurs.
Oxford varð yngsti leikmaður í sögu West Ham þegar hann spilaði gegn Lusitanos frá Andorra í Evrópudeildinni árið 2015.
Oxford var þá 16 ára gamall en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í aðalliðinu hjá Hömrunum.
Athugasemdir