banner
   fim 28. desember 2017 08:00
Elvar Geir Magnússon
West Ham ætlar að bjóða í Alfie Mawson
Alfie Mawson í leik með Swansea.
Alfie Mawson í leik með Swansea.
Mynd: Getty Images
West Ham ætlar að bjóða 25 milljónir punda í varnarmanninn Alfie Mawson hjá Swansea. Daily Mail greinir frá þessu.

Englendingurinn hefur verið einn af fáum ljósum punktum á erfiðu tímabili hjá Swansea.

Mawson er 23 ára og vill David Moyes fá hann í janúarglugganum. Swansea hefur þegar hafnað 18 milljóna punda tilboði frá Hömrunum,

Spennandi verður að sjá hvort 25 milljónir punda muni nægja til að fá Swansea til að selja Mawson.

Swansea er límt við botninn á ensku úrvalsdeildinni og er í leit að nýjum knattspyrnustjóra. West Ham er stigi fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner