lau 28. desember 2019 16:00
Aksentije Milisic
Eiginkona Martial lætur Mourinho heyra það
Mourinho og Martial.
Mourinho og Martial.
Mynd: Getty Images
Eiginkona Anthony Martial, leikmanns Manchester United, lætur Jose Mourinho heyra það og segir að Portúgalinn hafi haft neikvæð áhrif á Martial. Melanie Martial segir að hún hafi upplifað mjög erfitt tímabil fyrstu tvö árin sem hún og Martial voru saman í Manchester af því að Mourinho leyfði Martial lítið að spila.

„Á þessum tíma sem að Martial fékk lítið að spila þá lokaði hann sig alveg af. Hann var að þjást og ég vissi það, en hann sagði ekkert. Ég er eiginkona hans og ég var því föst í þessu með honum, ég gat ekkert sagt við þjálfarann," sagði Melanie.

„Ég fór ekki á viðburði sem klúbburinn hélt af því að ég vildi ekki rekast á þjálfarann. Þegar Martial kom inn á og skoraði, þá öskraði ég, ég var svo stolt."

Mourinho, sem var rekinn frá United fyrir um ári síðan, hafði sagt að Martial væri ekki andlega sterkur og hann var einnig ósáttur þegar Martial yfirgaf æfingabúðir liðsins til þess að vera viðstaddur fæðingu sonar síns. Melanie sagðist ekki hafa íhugað að láta Mourinho heyra það á samfélagsmiðlum vegna þess að Martial hefði ekki viljað það.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner