Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. desember 2019 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guardiola um umdeilda skiptingu: Vildi hvíla De Bruyne - Leikið of þétt
Mynd: Getty Images
Manchester City tapaði í gær gegn Wolves á útivelli, 3-2, eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir.

Kevin de Bruyne var skipt af velli í stöðunni 1-2 fyrir City. Pep Guardiola segist hafa þurft að hvíla stjörnumiðjumann sinn.

De Bruyne var ekki sáttur við skiptinguna og var myndavélin reglulega á honum á bekknum þegar Wolves kom til baka í leiknum.

„Það eru minna en tveir sólarhringar í að við spilum næsta leik," sagði Guardiola eftir leik.

„Wolves barðist og barðist og við gátum ekki varist síðustu mínúturnar," sagði Guardiola að lokum.

Manchester City tekur á móti Sheffield United á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner