Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. desember 2019 12:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hulk í ástarsambandi með frænku fyrrverandi
Mynd: Getty Images
Hulk, eða Givanildo Vieira de Sousa, skildi við eiginkonu sína, til tólf ára, Iran í júlí. Hulk og Iran eiga þrjú börn saman.

Hulk, sem er fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, er sagður byrjaður með frænku fyrrverandi eiginkonu sinnar.

Talsmenn Hulk hafa staðfest að Hulk hafi verið að hitta Camila frá því í október. Camila hefur þurft að eyða samfélagsmiðla reikningum sínum eftir að upp komst um hennar samband við Hulk.

Hulk hefur, samkvæmt Mirror sagt að hann hafi ekkert að fela. Hulk leikur í dag með Shanghai í kínversku deildinni.
Athugasemdir
banner
banner